Hvernig er u.þ.b. 15

Hvernig er u.þ.b. 15

Hvernig er u.þ.b. 15 metra hár vinnupallur reistur við húsvegg sem snýr að síki? Jú, bát er lagt upp að veggnum og pallurinn reistur ofan á bátnum.

Ég lærði nýtt orð í gær. Nei, ekki hollenskt orð (hollenska hvað er nú það?). Ég var að vaska upp þegar ég var spurður hvort ég teldi það bera vott um

"extravagancy"

að koma föður sínum á óvart með því að heimsækja hann þegar hann er á ferðalagi í Lundúnum. Eftir að hafa fengið útlistun á því hvað "extravagancy" merkir þá svaraði ég neitandi og vonaði að faðirinn væri ekki að gera neitt sem dóttirin ekki mátti vita.

Skildu eftir svar