Ömurlegt veður
Það var ekki hundi út sigandi í dag vegna hita. Verra höfðu þó hundar sem þurftu að eyða deginum fyrir framan tölvuskjáinn, inni á óloftkældri, illa loftræstri skrifstofu.
Þetta hundatal minnti mig á tilvitnun í Groucho Marx. Tilvitnunin var eitthvað á þessa leið: "Fyrir utan hundinn er bókin besti vinur mannsins. Innan hundsins er of dimmt til að lesa".