Bíltúr ?>

Bíltúr

Við fórum í morgun feðgar og nældum okkur í bílaleigubíl. Eftir það fórum við og nældum okkur í mömmu og héldum af stað í bíltúr. Leiðin lá um nærsveitirnar norður af Amsterdam. Við ókum meðfram vesturströnd IJmeer. Leiðin lá fyrst úr í fyrrverandi eyjuna Marken sem liggur í fyrrverandi flóanum IJmeer. Á fyrrverandi eyjunni Marken er fyrrverandi fiskiþorpið Marken. Húsin í bænum eru nokkuð sérkennileg. Annars vegar er þéttbyggð þyrping húsa upp á sandhól. Nær ströndinni eru húsin byggð á stöplum. Það var nefnilega þannig að þegar flóinn var flói og eyjan var eyja þá var mikil flóðahætta. Það þótti því vissara að byggja uppi á hól eða uppi á staur. Eftir að lokað var fyrir flóann minnkaði flóðahætta og byggður var kjallari undir húsin í stað stöpla.

Þetta húsatal minnir mig á skemmtilega sögu sem ég heyrði um daginn. Börn í Amsterdam læra ekki sönginn um heimska manninn sem byggði hús á sandi, enda flest öll hús hér byggð á sandi. Þau læra hins vegar um heimska manninn sem byggði hús á ís. En það er nú önnur saga.

Hvar var ég nú aftur? Jú, í Marken. En ekki mikið lengur. Við héldum nefnilega til Zaanse Schans með viðkomu í Volendam. Zaanstad er Árbær Amsterdam og Zaanse Schans er Árbæjarsafn Amsterdam. Þar er búið að safna saman gömlum húsum og gömlum vindmyllum. Við litum við í húsi sem hýsir ostagerð og minjagripaverslun; í húsi sem hýsir tréklossagerð og minjagripaverslun; og í húsi sem hýsir bara minjagripaverslun. Hápunktur ferðarinnar var hins vegar þegar við skoðuðum vindmyllu. Háa punktinum var náð uppi á annarri hæð vindmyllunnar. Ekki er fjarri lagi að hápunkturinn hafi jafnvel verið yfir sjávarmáli.

Vindmyllur eru stórskemmtileg fyrirbæri. Í toppstykkjum þeirra er flókin súpa af tannhjólum sem sjá til þess að vindorkan nýtist til magra þarfra hluta. Myllan sem við heimsóttum breytti hnetum í olíu. Vindurinn sá um að mylja hneturnar niður í mauk, hræra í maukinu, og lyfta hamri sem sá um að kreista olíuna úr hnetumaukinu.

Síðast en ekki síst ber að geta þess að ég framkvæmdi eina fullkomnustu samhliða bílalagningu sem sést hefur fyrr eða síðar. Það að að leggja bíl í stæði samhliða götu hefur hingað til ekki talist mín sérgrein. Í dag rak ég svo sannarlega af mér slyðruorðið.

Skildu eftir svar