Hestar og köngulær
Eftir að hafa eytt tveimur morgnum með villtum dýrum þá var í morgun kominn tími á að kynnast betur húsdýrum staðarins. Við skelltum okkur í útreiðartúr á nokkrum hestum búgarðsins. Við riðum þrettán kílómetra hring um svæðið sem tilheyrir búgarðinum. Mestur hluti túrsins var farinn í hægagandi en af og til hleyptum við hestunum á trott og gallop. Ég er ekki meiri hestamaður en það að ég hef ekki nokkra hugmynd um það hvaða gangtegundum íslenska hestsins trott og gallop samsvara. Í mínum huga kallast þær bara annar og þriðji gír.
Eftir hádegismatinn fórum við svo í þriðja og síðasta sinn í vettvangsferð með risa mauraætu rannsóknarkonunni. Líkt og í fyrri skiptin þá sáum við hvorki tangur né tetur af risa mauraætu. Hins vegar sáum við fjölbreytta fánu annarra dýra. Helsta nýjung dagsins voru kafloðnar tarantula köngulær og einstaklega gæfir refir.