Ofsi
Ég lauk í gærkvöldi við að lesa Ofsa eftir Einar Kárason. Bókin er skáldsaga byggð á Íslandssögunni. Sagan er sögð frá sjónarhorni leikenda og gerenda í þeirri atburðarás sem fór af stað eftir að Gissur Þorvaldsson kom heim frá Noregi og reyndi að binda endi á Sturlunga-ó-öldina.
Mér fannst þessi saga afar skemmtileg lesning. Það var gaman að lesa Íslandssöguna út frá persónulegu sjónarhorni. Meðan á lestrinum stóð þá gleymdi ég því gersamlega að þetta væri skáldsaga og trúði því staðfast að þetta væri nákvæm lýsing á því sem gerðist. Nákvæm og sönn lýsing á hugarheimi þeirra sem komu við sögu.
Mínar uppáhalds sögur eru einmitt þær sem ég get lifað mig inn í og gleymt að um skáldskap sé að ræða. Það er þó næsta víst að ég taki fram Íslandssöguna í kvöld og lesi kaflann um Strurlungaöldina til þess að réttta mig af og rifja betur upp hina opinberu útgáfu sögunnar.
2 thoughts on “Ofsi”
Vonandi átt þú Sturlungu.
Sturlungu á ég ekki. Hins vegar á ég Íslandssöguna í máli og myndum. Hún dugði til þess að rifja upp helstu atburði Sturlungaaldarinnar.