Æfingabúðir ?>

Æfingabúðir

Til þess að undirbúa mig sem best fyrir hlaup morgundagsins þá skrapp ég í tveggja daga æfingabúðir til Andorra. Þar tók ég þátt í stöngu prógrammi til þess að búa mig sem best undir hlaupið. Undirbúningurinn fólst að mestu leyti í því að borða góðan mat til þess að fylla vöðvana af orku. Auk þess gætti ég mig vel á því að drekka nóg af rauðvíni til þess að halda vöðvunum mjúkum. 

Á milli mála hlustaði ég á fyrirlestra um framtíð leitar á vefnum auk þess sem ég sýndi frumgerð af hugbúnaði til þess að gramsa í ljósmyndasöfnum. Fyrirlestrarnir voru hluti af þriðju árlegu ráðstefnunni um framtíð leitar á vefnum — The Future of Web Search workshop 2008.

Ráðstefnan var þokkalega áhugaverð auk þess sem ég fékk jákvæð viðbrögð í garð frumgerðarinnar minnar. Þetta var því hinn ágætasti undirbúningur fyrir hlaup morgundagsins.

Skildu eftir svar