Cursa Bombers 2008
Klukkan hálf tíu var ég mættur á ráslínu tíunda slökkviliðsmanna hlaups Barcelona — Cursa Bombers 2008. Ég mætti snemma til að ná góðri stöðu á ráslínunni og þar með sleppa við hvað mestu traffíkina í byrjun hlaups. Markmiðið var að hlaupa kílómetrana tíu á fimmtíu mínútum. Fimmtíu mínútur er fínn tími til að stefna á. Sér í lagi vegna þess hversu fimm sinnum taflan er auðveld. Það er því tiltölulega auðvelt að reikna út við hvert kílómetra skilti hvernig hlaupinu miðar.
0:00 Ég hljóp yfir ráslínuna.
5:13 Fyrsti kílómetrinn að baki. Ég var strax orðinn 13 sekúndum á eftir áætlun. Því miður get ég ekki kennt traffík um seinkunina. Ég hljóp einfaldlega of hægt.
10:16 Annar kílómetri að baki. Jákvæðu fréttirnar eru að hann var hraðari en sá fyrsti. Neikvæðu frétirnar eru að ég er enn yfir fimm mínútna markinu.
15:16 Þrír kílómetrar að baki. Húrra! Mér tókst að hlaupa heilan kílómetra á tilsettum tíma — fimm mínútum.
20:27 Fjórir kílómetrar að baki. Ég held ég hafi slakað aðeins of mikið á eftir að hafa ná að hlaupa þriðja kílómetrann samkvæmt áætlun.
25:29 Fimm kílómetrar að baki. Hlaupið hálfnað og ég næstum hálfri mínútu á eftir áætlun. Nú var svo sannarlega kominn tími til að skipta um gír.
30:21 Sex kílómetrar að baki. Gírskiptingin tókst greinilega. Ég náði að færa mig aðeins nær því að vera á áætlun.
35:09 Sjö kílómetrar að baki. Annar kílómetri undir fimm mínútum. Þar sem ég var nánast ekkert farinn að finna til þreytu þá var ég nokkuð viss um að það yrði leikandi létt að vinna upp tapaða tímann.
39:58 Átta kílómetrar að baki. Átta sinnum fimm eru fjörutíu. Húrra! Mér tókst að koma mér á áætlun. Kannski spurning um að skipta aftur um gír.
44:37 Níu kílómetrar að baki. Einungis einn kílómetri eftir.
49:11 Ég hljóp í gegnum endamarkið. Markmiði dagsins var náð. Ég náði að hlaupa tíu kílómetra á innan við fimmtíu mínútum.
Þó að ég hafi náð markmiði mínu og bætt eigið met um rúmlega tvær og hálfa mínútu þá var ég samt svolítið svektur yfir að hafa ekki sett markið hærra. Ég átti nefnilega talsvert af orku eftir þegar komið var í mark. Það þýðir þó ekkert að svekkja sig yfir fortíðinni. Nú er bara líta fram á veginn og undirbúa sig fyrir Cursa Bombers 2009. Ég þarf að læra fjóra komma fimm sinnum töfluna og kannski skreppa út að hlaupa öðru hvoru.