Myndasúpa
Þó að ég starfi sem vísindamaður þá er ekki þar með sagt að ég sé alla daga að fást við einhver geimvísindi. Já sæll! Eigum við að ræða það eitthvað eða?
Í gær leit dagsins ljós myndasúpan — mitt fyrsta opinberlega framlag til vísindanna sem starfmaður Yahoo! Research. Um er að ræða leik sem við nokkrir vinnufélagarnir settum saman á hakkdegi (e. hack day) Yahoo! fyrr í vetur. Það er að segja, við höfðum 24 tíma til þess að búa til eitthvað sniðugt. Útkoman varð myndasúpan.
Súpan samanstendur af sautján ljósmyndum frá Flickr og orðasúpu. Í orðasúpunni eru falin sautján lýsingarorð sem lýsa myndunum sautján. Til eru tvær útgáfur af leiknum. Í fyrsta lagi er hægt að spila leik út frá ákveðnu þema (t.d., iceland). Í öðru lagi er hægt að spila út frá ákveðnum notenda (t.d., borkur.net). Markmið leiksins er að veiða öll lýsingarorðin upp úr súpunni áður en tíminn rennur út. Góða skemmtun!
Sjá nánar: blogg færslu á next.yahoo.com.