Snjór, snjókast og snjókarl ?>

Snjór, snjókast og snjókarl

Það var allt á kafi í snjó þegar ég vaknaði í morgun. Ég iðaði allur í skinninu. Í tilefni dagsins ákvað ég að skilja hjólið eftir heima og ganga í vinnuna. Á leiðinni æfði ég mig í snjókasti. Snjórinn var hæfilega blautur til að búa til fína snjóbota. Eitthvað var hann hins vegar áttavilltur, snjórinn, því að fæstir snjóboltarnir rötuðu þangað sem ég miðaði. Allavegana ekki til að byrja með. Snjórinn á háskólalóðinni var svolítið betri. Ég gat hitt nokkur umferðarmerki.

Snjókastsþjálfunin mín átti eftir að koma að góðum notum seinna um daginn. Hollenska Stærðfræði og tölvunarfræði miðstöðin skoraði á Tölvunarfræðistofnun Amsterdamháskóla í snjókast eftir hádegsmatinn. Úr varð heljarinnar slagur. Rúmlega fimmtíu manns að kasta snjóboltum í allar áttir. Það var erfitt að greina á milli samherja og mótherja. Það skipti samt ekki öllu máli. Svo framarlega sem snjóboltinn hitti bara einhvern.

Eftir snjókastið ákváðum við nokkur úr ILPS hópnum að búa til snjókarl. Úr varð rúmlega tveggja metra rumur.

Æ hvað það er gaman upplifa vetur öðru hvoru.

Skildu eftir svar