Vetrarhörkur
Nú ganga heilmiklar vetrarhörkur yfir Holland. Það kynngir niður snjó. Það fer nú kannski ekki mikið fyrir snjónum í Amsterdam miðri. Hins vegar eru snjóþyngsli heldur meiri inn til sveita. Ég þurfti að hjóla í gegnum allt að fimmtíu millimetra jafnfallinn snjó á leiðinni í vinnuna í morgun.
Eins og venja er í þvílíku fannfergi þá fór umferð öll úr skorðum í morgun. Þegar mest var mældist lengd biðraða á hraðbrautum landsins fimmhundruðogsextíu kílómetrar. Fróðir menn segja að það sé fimmta lengsta biðraðasúpa í sögu þjóðarinnar.
Það er ekki hægt að segja annað en að vetrarveðrið hafi lagst vel í mig. Ég vaknaði fyrir allar aldir, mætti snemma í vinnuna og kom heilmiklu í verk. Það er þó ekki víst að allir hafi verið jafn hressir í dag. Það telst nefnilega vísindalega sannað að tuttugastiogfjórði janúar sé sá dagur ársins sem fólki er hættast við þunglyndi.
One thought on “Vetrarhörkur”
Lentir þú í þunglyndi 24.janúar?
Hvernig væri nú að fara að setja inn færslur hérna.
Fannfergið er kannski svona mikið í Hollandi að þú ert fastur í skafli einhversstaðar.
Ég verð nú bara að segja að ég er farinn að hafa verulegar áhyggjur af þér þarna í Amsd. Fyrst var það utankjörstaðar ævintýrið, svo snjórinn.
Ertu viss um að það sé hreinlega öruggt fyrir þig að vera í Hollandi á þessum síðustu og verstu tímum 🙂