Landsleikur í Þýskalandi
Héðan frá Amsterdam er stutt til Þýskalands. Það er ekki nema sex tíma lestarferð til Hamborgar. Ég hef því ákveðið að skella mér á morgun í sex tíma lestarferð til Þýskalands og horfa þar á landsleikinn á laugardaginn. Ég ætla að vísu ekki til Hamborgar. Ég er á leiðinni til Saarbruecken. Ég fer því ekki á völlinn heldur læt mér nægja að horfa á sjónvarpsútsendingu.
Þýskalandsferðin er ekki einungis farin til að horfa á fótbolta. Aðal ástæða ferðarinnar er að mér er boðið þar til teiti á laugardagskvöldið.