Skilafrestur fyrir lausnir í
Skilafrestur fyrir lausnir í heimaprófi í Modal Logic er á morgun. Ég eyddi deginum í að reyna að klára dæmin. Í upphafi dags hafði ég eingöngu lokið við fjögur dæmi af átta. Eftir mikið puð tókst mér að leysa þrjú dæmi í viðbót. Í dagslok átti ég því lausnir við sjö dæmum af átta. Síðasta dæmið bíður til morguns. Ég þarf ekki að skila inn lausnunum fyrr en klukkan fjögur. Mér ætti því að gefast tími til að klára verkið.
Fyrrum nágranni minn kom í heimsókn í dag til að ná í dótið sem hann átti í herberginu mínu. Hann hafði eingöngu pláss í bílnum fyrir sjónvarpið, myndbandstækið, fötin og bækurnar. Hann skildi því eftir sófann og blómin. Ef mér leiðist get ég lagst upp í sófa og horft á blómin hans vaxa.