Vaknaði um hálfáttaleytið, hitaði ?>

Vaknaði um hálfáttaleytið, hitaði

Vaknaði um hálfáttaleytið, hitaði kaffi og eldaði grjónagraut. Klukkan átta settist ég svo fyrir framan sjónvarpið til að horfa á beina útsendingu frá Malasíukappakstrinum. Hollensku þulirnir voru afar kátir því að hollenska ökumanninum Jos Verstappen gekk allt í haginn. Því miður náði hann ekki að næla sér í stig en stóð sig samt vel.

Ég kíkti á nokkrar vefsíður um Alpagöngur. Á einni þeirra var verið að kynna ævintýraferðir í Ölpunum. Mér leist vel á síðuna þar til farið var að nefna að eingöngu væri gist á fjögurra til fimm stjörnu hótelum. Fyrir mér tengjast Alpaævintýri fekar fjallakofum en fínum hótelum. Á svissneskri síðu var kynnt ferð um fjalllendi Sviss og meðal annars ganga á stærsta jökul Evrópu. Mig minnir að hafa lært í landafræði forðum daga að stærsti jökull í Evrópu héti Vatnajökull og væri á Íslandi.

Skildu eftir svar