Námsráðgjafinn minn, sem jafnframt ?>

Námsráðgjafinn minn, sem jafnframt

Námsráðgjafinn minn, sem jafnframt kennir mér Semantics of Computation, var búinn að segjast ætla að lána mér bók um lamda calculus. Ég vildi nefnilega glöggva mig betur á efninu áður en ég gerði heimadæmin mín. Þegar ég mætti á skrifstofuna hans í morgun til að sækja bókina var komið annað hljóð í skrokkinn. Hann hafði áttað sig á að lausn á hluta heimadæmanna var gefin í bókinni. Þar af leiðandi vildi hann ekki lána mér bókina en benti mér á aðrar bækur sem vert væri að líta í. Þegar upp var staðið tókst mér að leysa heimadæmin án þess að þurfa að líta í bók.

Skildu eftir svar