Ég vaknaði klukkan 7:50 ?>

Ég vaknaði klukkan 7:50

Ég vaknaði klukkan 7:50 við að það var bankað á dyrnar hjá mér. Ég staulaðist fram úr og opnaði dyrnar. Fyrir utan stóð nágranni minn skömmustulegur og sagði: "Fyrirgefðu en ég hélt þú værir vaknaður. En gætirðu litið í heimsókn til mín áður en þú ferð í skólann og kennt mér að klippa og líma (cut and paste)." Ég sagði það vera sjálfsagt og fór aftur að sofa og svaf vært þar til vekjaraklukkan mín hringdi. Klukkan 8:00 hringdi vekjaraklukkan. Ég fór á fætur og kenndi nágranna mínum að klippa og líma.

Skildu eftir svar