Þegar ég vaknaði í ?>

Þegar ég vaknaði í

Þegar ég vaknaði í morgun var mér litið út um gluggann. Ég hugsaði með mér hversu mikið ég hlakkaði til að fara út í sólskinið. Þegar ég hafði klætt mig í sokkana og burstað tennurnar var mér aftur litið út um gluggann. Ég hugsaði með mér hversu mikið ég kveið fyrir að þurfa að fara út í snjóbylinn (snjór í vindi). Eftir að hafa ætt í gegnum snjóstorminn (raunar nær því að vera snjóstinnigsgola) tókst mér að komast á skrifstofuna. Þar þurfti ég að draga fyrir gluggan svo að sólin skini ekki beint á tölvuskjáinn. Það er víðar en á Íslandi sem veðrið er fljótt að breytast.

Skildu eftir svar