Það að sjóða egg
Það að sjóða egg er oft talin lágmarkskunnátta í matseld. Þegar ætlaði að sjóða egg til að setja í túnfisksalatið mitt áttaði ég mig á að ég hafði aldrei á ævinni soðið egg í potti. Ég hafði alltaf notað hátækni eggjasjóðarann sem var til heima á Íslandi. Ég hafði þó grun um að suða eggja fælist í að láta þau liggja í sjóðandi vatni í ákveðinn tíma. Það hugboð mitt reyndist rétt því sú aðferð dugði. Ég fékk því egg í salatið.