Fór og gekk frá
Fór og gekk frá skráningu í skólann og talaði vid umsjónarmann námsins míns.
Ég er að gera tilraunir með hvernig er best að læra að rata. Ég skoðaði kort í smá tíma, fann út hvert ég átti að fara og lagði svo af stað, nokkurn veginn viss um í hvaða átt ég átti að fara en ekki með leiðina í kollinum. Einsetti mér svo að finna staðinn án þess að líta nokkru sinni á kort. Þetta gekk bara vel (a.m.k. í þetta sinn).
Talaði við húsvörðinn um nokkur atriði sem ég var ekki sáttur við í herberginu mínu. Hann sagðist ekki nenna að gera við gluggatjöldin. Það yrði hvort sem er líklega kannski hugsanlega skipt um gluggatjöld í öllu húsinu 2002. Hann var hins vegar til í að reyna að liðka upp á læsinguna á herberginu.